Leikur dagsins

LOKSINS EITTHVAĐ AĐ GERAST!!!!!

15. ágúst 2008 klukkan 15:21
Jæja þá er loksins eitthvað að gerast þó fyrr mætti nú vera..... nú er ég komin 8 daga fram yfir pjúfff......  en ég fór til Beritar í morgun og þá kom í ljós að ég er komin með tvö í útvíkkun... svo losaði hún belginn... og nú er ég búin að vera með þessa fínu samdrættaverki... mjög óþægilegt en samt mjög gott að því leyti að þetta virðist allt vera að bresta á... bara krossa putta og vona að krílið láti sjá sig sem fyrstHlæjandi

bleble

Sillius vonandi bráðlega fyrrverandi bumbulíusHlæjandi

EKKI ENN BÚIN!!!!!!!!!!!!

11. ágúst 2008 klukkan 00:44

OOOOOOOOOOOOHHHHHHHHHHHHHH   ég er ekki enn búin og ég er komin núna 4 daga fram yfir... ég veit að það er ekkert svo svakaleg, EEEENNN mig langar svo að fá litla krílið okkar í hendurnar.... Fýldur    AAAAAAAARG!!!!!!!!!!!!!   sniff..sniff... Ég held að ég sé búin að reyna allt nema laxerolíu en það er eitthvað sem ég ætla að láta vera... ohhh jæja þá er ég búin pústa aðeins og það var nú notalegt en já ég vona að það fari að styttast í þetta....

bleble

Sillius bumbulíusÓákveðinn

Ţetta er sko ekkert ađ verđa búiđ!!!

06. ágúst 2008 klukkan 17:31
Jæja þá er  kominn 6 águst og bara einn dagur í settann dag... og mér sýnist á öllu að það sé ekkert á leiðinni að koma neitt alveg strax..... þannig ég vil biðja ykkur endilega að senda mér rosalega sterka hríðastrauma... ég er nefnilega orðin pínu oggu ponsu þreytt... og væri alveg til í það að fara að klára þettaÓákveðinn

Annars erum við skötuhjúin bara hress, Ægir er búin að panta far með norrænu og mun hann fara þann 21 águst og verður þá kominn til Danmerkur þann 23 , hann missir að vísu viku af skólanum, en það er að því að ferðin sem hann ætlaði að fara þann 14 águst var uppseld en það er svosem í lagi þar sem það er líka ódýrrari að fara 21 águst og það er ágætt, ég og krílið fáum líka að hafa hann ponsu lengur hjá okkurUllandi 

Það er ekkert smá skrítið hvað tíminn líður fljótt... þetta er allt að bresta á úff ég er ekki alveg að ná þessu... eftir sirka mánuð verð ég líklegast kominn til Danmerkur og já verð þar næstu fimm eða sex árin... en auðvitað munum við reyna að koma sem oftast í heimsókn til Íslands en það færi nátturulega allt eftir fjárhagi og svona.

Jæja ég ætla að hætta þessu í bili og ég VOOOOOONA svo innilega að næst þegar ég blogga að þá verð ég komin með lítla krílið í hendurna og ég loooooooofa að setja inn mynd. 

En já ég ætla að setja inn seinustu bumbumyndina.

bleble

Sillius bumbulíusÓákveðinn

Ţetta er alveg ađ verđa búiđ!

16. júlí 2008 klukkan 23:13
Jæja þá fer litla krílið mitt og Ægis alveg að fara koma bráðum....  ég er komin 37 vikur og vááá hvað tíminn er fljótur að líða eitthvað... manni fannst það nú ekki í desember þegar ég komst að því að ég væri ólétt.... En tíminn er svakalega fljótur að líða....
 
þetta kríli er reyndar búið að vera að plata okkur hérna... eins og ég sagði frá í seinasta bloggi... fékk ég verulega samdráttaverki og svona  en það var engin útvíkkun og svo datt það líka niður... heyrðu byrjar þetta svo aftur núna seinasta miðvikudag, og var þá ennþá styttra á milli samdráttaverja sirka 4-5 á milli og þetta var svakalega vont... Ég var semsagt búin að vera svona frá því um 4 um daginn, hélt að þetta myndi nú bara detta niður, mamma og pabbi buðu mér að koma með sér  og ömmu útí Stykkilshólm að hitta systur ömmu sem var þar í sumarbústað, alltí lagi með það en ég var ennþá sem samdrætti en ákvað að vera ekkert að gera veður útaf þessu... það var ekki fyrr en við vorum að fara frá frænku minni sem ég ákvað að láta foreldra mína vita af þessu, ég vildi nefnilega ekki vera að hræða frænku mína og gera ömmu mína stressaða, Það var þá hringt í ljósmóður mína sem var því miður fyrir norðan  á ættarmóti en við gátum farið til ljósmóður sem var í Grundarfirði sem var fínt þar sem þetta var í leiðinni.... pabbi vildi helst bara bruna með mig útá Akranes... en sem betur fer var það ekki gert því ég hefði verið send strax til baka... en allavega þá var krílið bara að plata okkur enn einu sinni... úff...Óákveðinn ég veit núna varla hvað maður á að gera ef þetta kemur fyrir aftur... ég er nú búin að vera með samdrætti og verki meira og minna í vikunni en ég fer til Beritar á morgun og þá kemur bara betur í ljós með þetta allt saman....

Ég er samt alveg viss um það að ég eigi eftir að ganga framyfir miðað við hvernig þetta er allt búið að vera.... úff ég vona samt ekki... en ææ þetta er svosem ekkert svakalegt...  en  ég hlakka orðið rosalega mikið til að fá litla krílið okkar í hendurnar... jíííííííi hvað það verður æðislegtHlæjandi

En jæja ég ætla að láta þetta gott heita í bili

kannski næst þegar ég blogga þá verður litla krílið komiðUllandi

bleble

Sillius bumbulíusSvalur

Bölvađ rokrassgat!!!!

01. júlí 2008 klukkan 21:03
Jæja þá er ég að skríða í 35 vikurnar er komin nákvæmlega 34 vikur og 5 daga.....  Ég er ekki búin að hafa það gott í dag... fór til Berit um 6 leytið vegna stanslausra samdrætta verkja sem ég er búin að hafa síðan kl 12 í dag... Ég ætlaði nú ekkert að gera veður útaf þessu... en ég var aldrei búin að finna fyrir svona sterkum verkjum bara rétt svona eins og væga túrverkir... en þessir voru enn verri svo fór ég að finna til í bakinu líka og þá ákvað mamma að drífa mig uppá heilsugæslu...   En sem betur fer þá var engin útvíkkun  í gangi... bara slæmir hríðaverkir... þannig að Berit sagði að ég yrði að vera heima á morgun og slaka á og sjá til hvort þetta detti ekki niður... sem það vonandi á eftir að gera... því  krílið okkar er ekki alveg tilbúið fyrir heiminn ennþá, það þyrfti að vera á sama stað allavega í svona tvær vikur í viðbót.

Við ætluðum að fara norður um helgina, það verður víst eitthvað lítið úr því.... ef ske kynni að maður myndi bara fara af stað svona allt í einu á leiðinni... Fýldur   Mér finnst þetta hundleiðinlegt en maður verður nátturlega að hugsa um krílið fyrst og fremst...

Ég og Ægir fórum útá Skaga mánudaginn 23 júni í sónar til að athuga hvort að fylgjan væri búin að færa sig... hún var eitthvað búin að færa sig en ekki alveg.. þannig að við þurfum að fara aftur mánudaginn 7 júlí... veit ekki alveg hvað það þýðir ef hún nær ekki að færa sig alveg... en það hlýtur að koma í ljós þegar við mætum á svæðið.... 

Annars líður krílinu bara ljómandi vel allavega sagði Berit að það liti allt vel út hjá því þó svo það hafi eitthvað verið að stressa sig í dag en þetta á að vera allt í lagi... ég þarf bara að reyna að slaka aðeins meira á.... veit ekki alveg hvernig hægt er að slaka meira á en ég geri en ég reyni að gera mitt bestaUllandi


En já ég var að setja inn fleiri bumbumyndir handa ykkur en með þessum orðum ætla ég að láta þetta gott heita í bili...

bleble

Sillius bumbuliusUllandi

Sól,sól skín á mig!!!!!!!!

12. júní 2008 klukkan 20:18
Úff óþolandi þetta sólarleysi, það var svo gott veður í gær og svo kíkti ég á veðurspánna í gær og þá var spáð svipuðu veðri jafnvel betra... en svo vakna ég í morgun eldhress en þá var bara allt sólarlaust og skítkaltÖskrandi    Það er vonandi að það verði gott á morgun.....

Jæja ég er komin 32 vikur nákvæmlega í dag og fór ég til Berit í morgun og það leit bara allt vel út, litla krílið mitt er bara við það að skorða sigHlæjandi  En ég er komin með grindagliðnun.... pfff.... vissi svosvem að það væri eittthvað í gangi... alltaf að drepast á nóttunni... og slæm fyrst á morgnanna og svo seinnipartinn...  var byrjuð að ganga um eins og einhver gömul mörgæs... Ætlaði bara vera algjör nagli og herða þetta af mér vinna fulla vinnu fram að sumarfríi svaka fínt... en jamm fékk vottorð um að vinna bara 50% semsagt ég er hætt að þrífa og á nú bara að vinna frá 9-13 . Þannig að nú verð ég bara að finna mér eitthvað afslappandi og rólegt að gera frá 13...... 

Ægir fær að mæta seinna í skólannHlæjandi  Vííííííí  sem er svakalega gott þar sem við vorum farin að hafa áhyggjur að hann myndi missa af fæðingu litla krílsins...  sem er sko ekki alveg hægt..  

En já ég ætla að láta þetta nægja í bili

bleble

Sillius bumbulíusUllandi

Ţađ er komiđ sumar:D

01. júní 2008 klukkan 20:37

Öss hvað maður er búin að vera slappur eitthvað við þetta undanfarið... en já það er búið að vera crazy að gera....

Það gengur allt bara ágætlega hjá okkur skötuhjúunum... ég er komin rúmar 30 vikur þannig að þetta styttist allt saman... ég er enn við hestaheilsu samkvæmt henni BeritHlæjandi       

Við erum orðin heimilislaus og flutt til tengdó sem er svakalega fín,t þau passa sko vel uppá okkurGlottandi  

Ægir er kominn inní skólann sem er frábært og  erum nú á fullu að finna okkur íbúð, við erum búin að sjá nokkrar sem okkur líst ágætlega á  og mánaðarleigan er bara nokkuð sanngjörn,  Við urðum samt fyrir hálfgerðu áfalli þegar við sáum hvenær Ægir ætti að byrja í skólanum.... hann á semsagt að byrja 11 águst.....  ég er sett 7 águstÓákveðinn    En Ægir ætlar að athuga hvort hann fái ekki vikufrest eða svo til þess að geta allavega verið viðstaddur fæðinguna....
Fyrsta vikan í skólanum byggist víst á því að fólk kynnist og eitthvað... það er víst enginn kennsla fyrren tveimur vikum seinna
 þannig að þetta ætti að blessast allt.... Við vonumst nátturulega að krílið komi bara á réttum tíma skoGlottandi

Við vorum í bænum um helgina og fórum í leikhús, fórum á sýninguna Ástin er diskó,lífið er pönk... Þetta var alveg frábært, ég var með stjörnur í augunum allann tímann þetta var svo svakalega flott, ég mæli endregið með því ef þið er að pæla að skella ykkur í leikhús og sjá þessa sýningu.
Fórum líka í búðir og versluðum aðeins á litla krílið... alveg fáránlegt hvað það er lítið úrval af fötum fyrir beggja kyns en ég og Ægir fundum eitthvað flott og sætt handa krílinu... ég reyndar keypti mér líka smá af fötum hehe... ég elska hvernig tískan er í dag.. hún er svo hliðholl okkur óléttu konunum... það er algjör óþarfi að vera að spreða einhver heil ósköp í einhver spes óléttuföt það er alveg bókað mál þó svo þau eru nú alveg sérstaklega þægileg neita því ekki... systir Ægis lét mig einmitt fá svona spes óléttupils... og það er svakalega þægilegt en já ég keypti mér einhverja boli, og leggings og svona sem ég get líka einnig verið í eftir að ég er búin að eiga.

jæja ég ætla að láta þetta duga í bili

bleble

Sillius bumbuliusUllandi

Heyrðu ég er búin að setja inn nýjar bumbumyndir...Hlæjandi

Nýjar bumbumyndir:D

25. apríl 2008 klukkan 22:38

Jæja ég er loksins búin að setja inn nýjar bumbumyndir.... ég ákvað að vera ekkert að setja inn myndirnar úr 20 vikna sónarnum því að það sést eiginlega ekkert á þeim...


Það er annars allt gott að frétta af okkur... ég er komin 25 vikur og það gengur bara allt í orden hjá mér... ég fór til Berit á miðvikudaginn og ég er hin hraustasta...Hlæjandi
Hún var samt ekkert ánægð með að hafa fundið sykur í þvaginu mínu... hmm gæti verið útaf því að ég fékk mér coco pops í morgunmat...úpps...Skömmustulegur
Annars kemur það bara betur í ljós í næstu mæðraskoðun...

Ég og Ægir erum búin að selja íbúðina, fengum svaka gott verð fyrir hana sem við gátum ekki neitað og verðum flutt fyrir 14 maí og það fer reyndar alveg að styttast... erum reyndar byrjuð að pakka aðeins og svona...
Foreldrar Ægis ætla að hleypa yfir okkur húsaskjóli þangað til við förum út sem er mjög fallegt af þeim því það gerir okkur kleift að reyna að borga niður restina af skuldunum  og reyna að safna saman einhverjum pening svo við förum ekki út allslaus Ullandi

Jæja ég held að þessa sé nóg í bili

bleble

Sillius bumbuliusSvalur

Páskarnir búnir:(

25. mars 2008 klukkan 19:48
Jæja þá eru páskarnir búnir og maður búin að éta sig ful

lsadda af páskaeggjum.....  úff....

Ég og Ægir fengum þessa viðbjóðslegu ælupest sem er búin að ganga og erum búin að liggja í allann dag í eymd og volæði...  getum varla haldið einu eða neinu niðri... ja ég get varla haldið mat niðri... Ægir því miður getur ekki ælt...Óákveðinn      En við erum bæði að koma til... þetta er frekar ógeðsleg pest....

Litla krílið er byrjað hreyfa sig alveg á fullu... þetta er algjör orkubolti, ég bjóst við að þetta yrði einskonar saklaust pot öðruhvoru, en ég má ekki sitja kyrr eða liggja þá er það byrjað að sparka... hver hefði haldið að rétt tæpt 17 cm kríli væri svona kraftmikið..Hlæjandi
En það er allt að hinu góða , ég veit allavega að það er allt í lagi með litla krílið okkarBrosandi

Ég fór í 20 vikna sónar á Akranesi seinasta mánudag og það var allt í lagi eins og það átti að vera... við fengum þó frekar skrítnar sónarmyndir....  jaa þær eru frekar óskýrar og kannski frekar erfitt að greina hvað er hvað... en þið getið skoðað þær vandlega og kannski sjáið þið eitthvað sem ég ekki séGlottandi

Jæja þá er ég hætt í bili

bleble

Sillius bumbulíusSvalur

LOKSINS!!!!!!!!!

13. mars 2008 klukkan 19:53


Jæja þá er ég loksins búin að setja inn sónarmyndir og eina bumbumynd... þið skellið ykkur bara á myndir og þá kemur þetta um leið... Svo ætla ég að reyna að vera samviskusamari og duglegri að setja inn myndir... njótið velHlæjandi

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leit

Könnun

Er ég ađ standa mig ágćtlega í blogginu?